Sign in to confirm you’re not a bot
This helps protect our community. Learn more
Fréttir og upplýsingar í riðumálum - fundur um T137 og meira í Skaftártungu
N/ALikes
109Views
Mar 302025
[Ath: Lestu lýsinguna fyrst - þar geturðu hoppað beint í ákveðna fyrirlestra!] Upptökur af upplýsinga- og spjallfundi, sem Ásgerður Gróa Hrafnsdóttir (Jórvík) og Karólína Elísabetardóttir (Hvammshlíð) héldu í Tunguseli í Skaftártungu á miðvikudaginn, 26. mars 2025. Í gegnum Zoom voru einnig riðusérfræðingarnir Stefanía Þorgeirsdóttir (Keldum), Gabriele Vaccari (Ítalíu) og Gesine Luhken (Þýskalandi) með erindi; þeir eru hluti af alþjóðlegum rannsóknarhóp um riðu á Íslandi, sem hefur starfað síðan 2021. 00:00:10 Karólína Elísabetardóttir, sauðfjárbóndi í Hvammshlíð: Helstu grundvallaratriðin um riðu á Íslandi, stökkbreytingar og arfgerðir 00:29:55 dr. Gabriele Vaccari, riðusérfræðingur á heilbrigðisstofnun ríkisins á Ítalíu: Saga T137 á Ítalíu - fyrir 15 árum fann rannsóknarhópurinn hans óvænt nýjan verndandi breytileika (reyndar tvo, en hinn - K176 - finnst ekki á Íslandi, bara í suðrænum kynjum) 00:54:12 dr. Stefanía Þorgeirsdóttir, Keldum: Hlutverk Keldna í riðugreiningum; helstu niðurstöður úr riðurannsóknum síðan 2021; 01:08:37 nýjustu niðurstöður úr riðugreiningu eitla úr T137-kindum (allir riðuneikvæðir) 01:23:53 dr. Gesine Luhken, prófessor í erfðafræði búfjársjúkdóma í Þýskalandi: Erfðafræðilegur fjölbreytileiki mikilvægur - heppileg ræktunarstefna úr sjónarhorni erfðafræðings - bæði riðuþol og "hefðbundin" ræktunarmarkmið skipta máli 02:07:41 Karólína E.: Spurningar áhorfenda; 02:11:54 Af hverju er T137 langbestur af öllum "ljósgrænum" breytileikum (MV)? Yfirlit yfir T137-uppsprettur fyrir jól 2024 og í dag. Staðan í Skaftártungu. Arfgerðagreining skiptir öllu máli. Spurningar/umræða. Um kveikju fundarins: Síðan Karen Líf á Grímsstöðum 4 hafði samband við Karólínu viku fyrir jól, hefur ótrúlega mikið gerst í T137-málum. Sólveig Erla Hinriksdóttir á Vogum 3 kom rétt á eftir, þá Gunnar og Linda á Flögu 1 á aðfangadegi og svo koll af kolli. Í dag, þremur mánuðum seinna, eru T137-uppsprettubú með lifandi T137 orðin 17 - í staðinn fyrir 8. Öll met varðandi T137-gripafjölda sló "fjar-tvíbýlið" Snæbýli-Jórvík (Ásgerður Gróa Hrafnsdóttir og Jóhannes) þar sem 50 (!!!) T137-gripir fundust, sem enginn hafði hugmynd um áður ... Um miðjan mars bættust mikilvægar fréttir úr vísindaheimi við. Fyrst smá útskýring: Riðusmit finnst fyrst í eitlum, löngu áður en einkenni koma fram og smitið er búið að ná heilanum. "Eitlajákvæðar" kindur smita þegar frá sér. Riðuneikvætt heilasýni segir því ekki alla sögu - og til að staðfesta riðuþol arfgerðar, er mikilvægt að riðugreina einnig eitla úr kindum með þessa arfgerð. Aldrei hefur fundist riðujákvæð kind með T137, í hvaða samsetning sem er, hvorki hér á landi né í löndum þar sem T137 er algengt eins og á Ítalíu. En flest gögn byggðu á heilasýnum, gögn úr eitlum voru frekar umfangslítil. Þess vegna voru núna eitlar úr 73 T137-kindum (þar af 4 arfhreinum) úr riðuhjörð á Ítalíu skoðaðir. Niðurstaðan kom í ljós á Keldum um miðjan mars: Allir eitlar eru neikvæðir! (Til samanburðar: ARR/ARQ smitast heldur ekki í eitlunum, en í sjaldgæfum tilfellum í heilanum; AHQ/ARQ og AHQ/AHQ hins vegar hefur fundist með riðujákvæða eitla erlendis, eins með N138/ARQ hér á landi; um C151 eru engin eitlagögn til.) Allar helstu upplýsingar um riðu, þolræktun, arfgerðagreiningar, styrkir o.m.fl.: www.riduvarnir.is

Leiðbeiningar um burðarhjálp & fleiri fróðleikur

352 subscribers